Ferðatæknimót

17 Jan 2024 | Reykjavík, Iceland

17 January 2024

102 Reykjavík, Iceland

Bjarnargata 1

Gróska, Sykursalur

Ferðatæknimót

Fyrirtækjastefnumót - Hvernig virkar það?

Ferðatæknimótið er vettvangur fyrir aðila til að hittast á snörpum fundum til að ræða tækifæri til samstarfs vegna áskorana og verkefna sem tengjast stafrænni þróun innan ferðaþjónustunnar. Fljótleg og þægileg leið til að hitta mögulegan samstarfsaðila.

Hver fundur er 15 mínútur og fara fundirnir fram milli kl. 13.00 og 15.00.
15 mínútur eru fljótar að líða, en þær eru nóg til að búa til fyrstu tengsl sem má síðan byggja ofan á síðar.

Markmið viðburðarins eru að:

  • Leiða saman ferðaþjónustufyrirtæki og tæknifyrirtæki

  • Stuðla að stafrænni þróun og markvissri notkun á tækni í rekstri ferðaþjónustufyrirtækja, öllum til hagsbóta

  • Hvetja ferðaþjónustufyrirtæki til að kynna sér þær lausnir og tækni sem eru í boði

  • Bjóða tæknifyrirtækjum upp á vettvang til að kynna sínar lausnir og þjónustu

1) Skráning: Skráning fer fram með því að smella á græna takkann á forsíðunni "Register now"

2) Skrá prófíl þinn og þjónustu (tækni eða ráðgjöf) eða ferðaþjónustufyrirtæki

  • ATH að neðst á þarftu að skrá þitt fyrirtæki undir "Register as..."- þú velur eitt af eftirfarandi:

    • Tæknifyrirtæki: Fyrirtæki sem býður upp á lausnir sem styður við ferðatækni og aðra stafræna þróun innan ferðaþjónustunnar.

    • Ferðaþjónustufyrirtæki: Ferðaþjónustufyrirtæki sem leitast eftir ráðgjöf og/ eða lausnum á sviði ferðaþjónustu.

    • Ráðgjafafyrirtæki: Ráðgjafafyrirtæki sem býður upp á ráðgjöf sem styður við ferðatækni og aðra stafræna þróun innan ferðaþjónustunnar.

  • Skráðu upplýsingarnar um þig og þitt fyrirtæki/sveitarfélag/stofnun eins vel og þú getur.

  • Settu allt fram á einfaldan og hnitmiðaðan hátt.

  • Þinn prófíll ætti að lýsa hver þú ert (þitt fyrirtæki/sveitarfélag/stofnun), hvað þú hefur uppá að bjóða/leitar eftir og hverja þú vilt hitta.

  • Góður prófíll skiptir sköpum hér.

Góð skráning er grunnur fyrir því að fá fundarbeiðnir og að aðrir samþykki fundarboðin þín.

3) Skoða þátttakendur (Participants) og verkefni (Marketplace)

  • Ef þú hefur ákveðna vöru og/ eða þjónustu sem þú vilt kynna fyrir þátttakendum Ferðatæknimótsins getur þú búið til ýtarlega lýsingu og t.d. hlaðið inn myndum undir "Marketplace" og "Manage opportunities". Skoðaðu áhugaverð tækifæri, fyrirtæki/sveitarfélög/stofnanir og vörur/lausnir/þjónustu. Smelltu á til að sjá nánar viðkomandi.

4) Opnaðu fyrir þátttöku á fundum

  • Undir "Agenda" velur þú hvaða viðburðum þú ætlar að taka þátt í með því að velja "Add" og opnar svo fyrir fundartíma hjá þér með því að velja "Edit availability".

5) Senda og svara fundarbeiðnum

  • Skoðaðu reglulega þátttakendur (og nýja) og verkefni þeirra, og senda fundarbeiðni á þá aðila sem þú vilt funda með á mótinu. Gott er að skrá hvers vegna þú vilt hitta viðkomandi en það eykur líkur á að fundurinn verði samþykktur

  • Samþykktar fundarbeiðnir koma sjálfkrafa inn á tímaáætlun þína.

  • TIP: Sækið "b2match" snjallforritið fyrir farsíma til að halda utan um fundina þína í símanum!

    • Yfirlit yfir fundina þína og fundarbeiðnir finnurðu undir "Meetings" (efst á gráu stikunni)

    • Fundarbeiðnum verður að svara, að öðru leyti verður ekkert af fundum.

Reglur varðandi bókanir

  • Allir skráðir aðilar geta óskað eftir fundum með öllum öðrum skráðum aðilum.

  • Samþykkja þarf fundi til að þeir komi inn í dagskrá þína yfir fundi.

5) Ferðatæknimótið og áminning

  • Daginn fyrir Ferðatæknimótið færðu tölvupóst með yfirliti yfir fundina þína sem munu eiga sér stað 17. janúar 2023.

  • Þú sækir síðan dagskrána þína í "b2match" snjallforritinu sem heldur utan um fundina þína í símanum!